16.05.2019
Ríkisendurskoðun var kjörin stofnun ársins í árlegri könnun Sameykis stéttarfélags (áður SFR stéttarfélag í almannaþágu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar).
Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi veitti viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn í gær en þetta var í fjórtánda sinn sem könnun á ríkisstofnun ársins er gerð. Ríkisendurskoðun varð í fyrsta sæti, af 82 stofnunum, í flokki ríkisstofnana með fleiri en 50 starfsmenn. Valið er byggt á svörum rúmlega 10 þúsund starfsmanna í einni stærstu vinnumarkaðskönnun landsins.