Ríkisendurskoðandi starfar á vegum Alþingis og er trúnaðarmaður þess, samkvæmt lögum nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Hann er sjálfstæður og engum háður í störfum sínum. Skrifstofa ríkisendurskoðanda nefnist Ríkisendurskoðun.
Hlutverk embættisins er að hafa eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins, ganga úr skugga um að fjármunum sé ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt og í samræmi við ákvarðanir Alþingis.
Sjálfstæði embættisins felst í því að þótt það heyri stjórnskipulega undir Alþingi þá velur það sjálft og skipuleggur verkefni sín. Ríkisendurskoðun er því í senn sjálfstæð gagnvart Alþingi og algerlega óháð framkvæmdarvaldinu. Að þessu leyti er staða Ríkisendurskoðunar svipuð og systurembætta hennar í nágrannalöndunum.
Hjá Ríkisendurskoðun starfa um 45 manns á tveimur starfsstöðvum. Aðalskrifstofa embættisins er í Bríetartúni 7 í Reykjavík en auk þess rekur embættið starfsstöð að Glerárgötu 34 Akureyri.
Guðmundur Björgvin Helgason var kosinn ríkisendurskoðandi til sex ára af Alþingi hinn 9. júní 2022. Hann er fæddur árið 1964 og er með BA-próf í alþjóðasamskiptum frá George Washington University og MSc-próf í stjórnmálafræði frá London School of Economics. Hann var áður ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneyti og mannauðsstjóri hjá Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna í Jórdaníu.
Stefnumótun ríkisendurskoðanda fyrir tímabilið 2025-2029 tekur mið af því lögbundna hlutverki embættisins að vera trúnaðarmaður Alþingis og vera ábyrgur gagnvart því við endurskoðun og eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins. Ríkisendurskoðandi upplýsir Alþingi og stjórnvöld um málefni sem varða rekstur og fjárreiður ríkisins, leiðir í ljós frávik frá lögum og reglum á því sviði og gerir tillögur að úrbótum, bættri stjórnsýslu, skýrari ábyrgð og betri nýtingu ríkisfjár.
Ríkisendurskoðandi er sjálfstæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlutverki sínu samkvæmt lögum nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga.
Störf embættisins miða að því að veita framkvæmdarvaldinu aðhald og löggjafarvaldinu traustar og áreiðanlegar upplýsingar um fjárreiður ríkisins og ríkisaðila, sem og frammistöðu þeirra. Þannig metur Ríkisendurskoðun og miðlar til Alþingis og almennings upplýsingum um meðferð og nýtingu ríkisfjár, hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins og hvort framlög ríkisins skili þeim árangri sem að er stefnt. Með þessu stuðlar Ríkisendurskoðun að gagnsæi, ábyrgð, trausti og trúverðugleika í opinberum rekstri og stjórnsýslu.
Skipulag vinnu
|
Verkefni og markmið
|
Framþróun og tækni
|
Mannauður og starfsaðstæður
|
Orðspor og ásýnd
|
Ríkisendurskoðun starfar sem ein heild undir stjórn ríkisendurskoðanda. Fagleg starfsemi embættisins fer fram á tveimur sviðum: fjárhagsendurskoðunarsviði og stjórnsýslu- og lögfræðisviði. Fyrrnefnda sviðið annast fjárhagsendurskoðun samkvæmt 5. gr. laga nr. 46/2016 og tekjueftirlit samkvæmt 4. gr. sömu laga. Síðarnefnda sviðið annast stjórnsýsluendurskoðun samkvæmt 6. gr. laga nr. 46/2016, eftirlit með fjármálum stjórnmálastarfsemi samkvæmt lögum nr. 162/2006 og eftirlit með ársreikningum kirkjugarða samkvæmt lögum nr. 36/1993.
Yfir hvoru fagsviði er sviðsstjóri og undir honum eru sérfræðingar og, eftir atvikum, einn eða fleiri verkefnastjórar. Fagsviðin starfa almennt í teymum og eiga náið samstarf í ýmsum málefnum, bæði til lengri og skemmri tíma. Nokkur teymi starfa þvert á sviðin, s.s. teymi sem annast eftirlit með framkvæmd fjárlaga og laga um opinber fjármál og teymi sem sinnir málefnum tengdum innra eftirliti og innri endurskoðun hjá ríkisaðilum.
Stoðsvið sinnir ýmsum miðlægum verkefnum og stoðþjónustu, s.s. fjármálum og almennum rekstri embættisins, tölvu- og öryggismálum, og umsjón með fasteignum og tækjabúnaði embættisins. Þá sinnir skrifstofa ríkisendurskoðanda einnig miðlægum verkefnum, s.s. mannauðsmálum, samskipta- og upplýsingamálum og alþjóðlegri samvinnu.
Hér er listi yfir starfsfólk Ríkisendurskoðunar.
Sérfræðingur
Stoðsvið
adalbjort.maria.sigurdardottir@rikisendurskodun.is
Verkefnastjóri
Fjárhagsendurskoðunarsvið
albert.olafsson@rikisendurskodun.is
Verkefnastjóri / endurskoðandi
Fjárhagsendurskoðunarsvið
andri.elvar.gudmundsson@rikisendurskodun.is
Verkefnastjóri
Fjárhagsendurskoðunarsvið
audur.gudjonsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
alfheidur.dogg.gunnarsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
asa.hulda.oddsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
berglind.eyglo.jonsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
berglind.glod.gardarsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Skrifstofa ríkisendurskoðanda
birgir.finnbogason@rikisendurskodun.is
Mannauðsstjóri
Skrifstofa ríkisendurskoðanda
birgitta.arngrimsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
bjorgvin.th.arnarson@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
einar.orn.hedinsson@rikisendurskodun.is
Verkefnastjóri
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
elisabet.stefansdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
gestur.pall.reynisson@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
grettir.gautason@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
gudjon.magnusson@rikisendurskodun.is
Ríkisendurskoðandi
gudmundur.bjorgvin.helgason@rikisendurskodun.is
Kerfis- og öryggisstjóri
Stoðsvið
gudmundur.orri.bergthorsson@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
gudny.ragna.ragnarsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
gudrun.eggertsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
gudrun.vaka.thorvaldsdottir@rikisendurskodun.is
Verkefnastjóri
Fjárhagsendurskoðunarsvið
halla.bergthora.halldorsdottir@rikisendurskodun.is
Umsjónarmaður fasteignar
Stoðsvið
halldora.asgeirsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
haraldur.gudmundsson@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
hildur.arnadottir@rikisendurskodun.is
Verkefnastjóri / endurskoðandi
Fjárhagsendurskoðunarsvið
hildur.sigurdardottir@rikisendurskodun.is
Sviðsstjóri / endurskoðandi
Fjárhagsendurskoðunarsvið
hinrik.thor.hardarson@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
hrefna.gunnarsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
jakob.gudmundur.runarsson@rikisendurskodun.is
Staðgengill ríkisendurskoðanda / Sviðsstjóri
Stoðsvið
jarthrudur.hanna.johannsdottir@rikisendurskodun.is
Starfandi sviðsstjóri
Stoðsvið
jon.loftur.bjornsson@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
kristin.emilia.ingibergsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
kristin.thorbjorg.jonsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
magnus.lyngdal.magnusson@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Skrifstofa ríkisendurskoðanda
oli.jon.jonsson@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur / endurskoðandi
Fjárhagsendurskoðunarsvið
oskar.sverrisson@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
reynir.sigurdur.gislason@rikisendurskodun.is
Sviðsstjóri
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
sigridur.audur.arnardottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Stjórnsýslu- og lögfræðisvið
sigridur.kristjansdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur / endurskoðandi
Fjárhagsendurskoðunarsvið
sindri.freyr.gislason@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
sjofn.arna.karlsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
svafa.thora.hinriksdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
telma.steingrimsdottir@rikisendurskodun.is
Sérfræðingur
Fjárhagsendurskoðunarsvið
thelma.hillers@rikisendurskodun.is
Matráður
Stoðsvið
thorvaldur.sveinsson@rikisendurskodun.is
Ríkisendurskoðun hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.
Með innleiðingu jafnlaunakerfis samkvæmt jafnlaunastaðli hefur Ríkisendurskoðun komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist ávallt á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun. Stefna embættisins í þessum efnum er að starfsfólk njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar.
Vottunin er í gildi frá 2022 til 2025.
Ríkisendurskoðun auglýsir laus störf á Starfatorgi en það má jafnframt senda almennar umsóknir á starf@rikisendurskodun.is. Almennar umsóknir eru geymdar í 6 mánuði.
Þrátt fyrir að eiga inni almenna umsókn hvetjum við áhugasama sérstaklega til að fylgjast með auglýstum störfum hjá okkur á Starfatorgi og senda inn umsókn fyrir það starf sem vekur áhuga.
Til að stuðla að því að starfsemi Ríkisendurskoðunar þróist í takt við alþjóðlegar hræringar leggur stofnunin áherslu á að eiga góð samskipti og samstarf við systurstofnanir erlendis.
Stofnunin hefur lengi tekið þátt í norrænu samstarfi ríkisendurskoðana sem og starfi Evrópu- og Alþjóðasamtaka á þessu sviði, EUROSAI og INTOSAI. Þá hefur stofnunin átt tvíhliða samskipti við ríkisendurskoðanir nokkurra landa, m.a. hefur hún myndað traust tengsl við bresku ríkisendurskoðunina, National Audit Office (NAO), og notið aðstoðar hennar í ýmsum verkefnum á undanförnum árum.
Ríkisendurskoðun tekur þátt í samstarfi um endurskoðun fjölþjóðlegra stofnana og samtaka sem Ísland á aðild að, s.s. EFTA. Aukin þátttaka Íslands í þróunarverkefnum víða um heim hefur einnig lagt þær skyldur á herðar Ríkisendurskoðunar að endurskoða þau fyrir hönd íslenskra stjórnvalda.
Guðmundur Björgvin Helgason tekur við af Skúla Eggert Þórðarsyni sem ríkisendurskoðandi.
Ríkisendurskoðun opnar starfsstöð á Akureyri
Skúli Eggert Þórðarson tekur við af Sveini Arasyni sem ríkisendurskoðandi.
Heildarendurskoðun laga um Ríkisendurskoðun með lögum nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreiknings. Í lögunum er ákvæði um kosningu ríkisendurskoðanda af Alþingi og setutími hans takmarkaður við tólf ár. Verkefni ríkisendurskoðanda eru nánar skilgreind. Málsmeðferðarreglur eru settar og aðgangur að gögnum Ríkisendurskoðunar skýrðar.
Sveinn Arason tekur við af Sigurði Þórðarsyni sem ríkisendurskoðandi.
Ný lög sett um Ríkisendurskoðun. Skoðunarheimildir rýmkaðar og stofnunin fær heimild til að gera úttektir á framkvæmd laga og reglna um umhverfismál (umhverfisendurskoðun).
Embætti yfirskoðunarmanna ríkisreiknings lögð niður.
Sigurður Þórðarson tekur við af Halldóri V. Sigurðssyni sem ríkisendurskoðandi.
Sérstök lög sett um Ríkisendurskoðun og stofnunin færð undir Alþingi til að tryggja sjálfstæði hennar og efla eftirlit löggjafans með framkvæmdarvaldinu. Skoðunarheimildir rýmkaðar og stofnuninni veitt heimild til stjórnsýsluendurskoðunar.
Ríkisendurskoðun gerð að sérstakri stjórnardeild (stofnun) undir fjármálaráðherra. Halldór V. Sigurðsson skipaður ríkisendurskoðandi.
Embættisheiti aðalendurskoðanda breytt í ríkisendurskoðanda.
Einar Bjarnason tekur við af Birni E. Árnasyni sem aðalendurskoðandi ríkisins.
Björn E. Árnason tekur við af Jóni Guðmundssyni sem aðalendurskoðandi ríkisins.
Sérstök löggjöf sett um ríkisbókhald og endurskoðun. Endurskoðunin skilin frá annarri starfsemi fjármálaráðuneytisins. Embætti aðalendurskoðanda ríkisins komið á fót og hann settur beint undir fjármálaráðherra. Jón Guðmundsson ráðinn í embættið.
Endurskoðun landsreikninganna flyst til fjármáladeildar Stjórnarráðsins (fjármálaráðuneytis).
Framkvæmdarvald flyst inn í landið. Stjórnarskrifstofu III (fjármál) í hinu nýstofnaða Stjórnarráði Íslands falið að annast endurskoðun landsreikninganna. Indriði Einarsson verður skrifstofustjóri. Yfirskoðunarmenn landsreikninganna þó áfram kosnir á Alþingi og sinna endurskoðun á vegum þingsins.
Endurskoðun landsreikninganna gerð að sjálfstæðu verkefni sem sérstakur starfsmaður, Indriði Einarsson, annast í umboði yfirskoðunarmanna.
Ísland fær sína fyrstu stjórnarskrá, fjárveitingarvald færist til Alþingis frá Danmörku. Embætti tveggja þingkjörinna yfirskoðunarmanna landsreikninganna stofnuð.