17.11.2016
Að gefnu tilefni vill Ríkisendurskoðun upplýsa að Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi, var hinn 19. september sl. settur ríkisendurskoðandi til að annast endurskoðun Lindarhvols ehf.
Eftir að fjármála- og efnahagsráðherra kynnti ákvörðun sína um að tilnefna bróður ríkisendurskoðanda, Þórhall Arason, í stjórn Lindarhvols ehf. ritaði ríkisendurskoðandi fjármála- og efnahagsráðuneytinu bréf þann 28. apríl þar sem hann vakti athygli á tengslum sínum við Þórhall. Í bréfinu var bent á að þessi tengsl hefðu í för með sér vanhæfi ríkisendurskoðanda til þess að hafa eftirlit með framkvæmd samnings Lindarhvols og fjármálaráðherra, líkt og lög mæltu fyrir um. Jafnframt ritaði ríkisendurskoðandi forseta Alþingis bréf þann 12. maí þar sem hann lýsti sig vanhæfan af þessum sökum til að annast lögboðið eftirlit með Lindarhvoli ehf.
Með hliðsjón af framansögðu setti forseti Alþingis Sigurð Þórðarson sem seturíkisendurskoðanda til að annast endurskoðun Lindarhvols ehf. og lögboðið eftirlit Ríkisendurskoðunar með samningi Fjármála- og efnahagsráðherra og Lindarhvols ehf. um sölu eigna sem ríkissjóður fékk sem stögugleikaframlag skv. nauðasamningum gömlu bankanna.