29.06.2012
Í bréfi Ríkisendurskoðunar til forseta Alþingis kemur fram að könnun á bókhaldi og reikningum Þorláksbúðarfélagsins fyrir árin 2008–11 gefi ekki tilefni til athugasemda.
Aftur á móti telur Ríkisendurskoðun nokkra óvissu ríkja um núverandi fjárhagsstöðu félagsins og hvenær byggingu Þorláksbúðar í Skálholti muni ljúka.