Samningar um endurskoðun Seðlabanka Íslands

Almennt

24.08.2009

Ríkisendurskoðun hefur samið við endurskoðunarfélagið Deloitte hf. um að annast ytri endurskoðun Seðlabanka Íslands á tímabilinu 2009–2011. Þá hafa Ríkisendurskoðun og Seðlabankinn samið um að stofnunin annist innri endurskoðun bankans á sama tímabili.Í júlí sl. fól Ríkisendurskoðun, sem lögum samkvæmt annast endurskoðun Seðlabankans, Ríkiskaupum að bjóða út ytri endurskoðun bankans. Í útboðslýsingu kom fram að lægsta tilboði yrði tekið en að auki þyrfti bjóðandi að sýna fram á hæfni sína til að sinna endurskoðun samkvæmt alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, alþjóðlegum stöðlum um gæðaeftirlit og að hann tengdist aðila með reynslu af endurskoðun seðlabanka. Ákvörðun um að bjóða út endurskoðun Seðlabankans er í samræmi við ákvæði 4. gr. laga um Ríkisendurskoðun sem heimila stofnuninni að fela löggiltum endurskoðendum að vinna að einstökum verkefnum hennar.

Tilboð bárust frá fjórum endurskoðunarfélögum: Deloitte hf., KPMG hf., PricewaterhouseCoopers hf. og BT sf. Allir bjóðendur nema sá síðastnefndi uppfylltu skilyrði útboðsins og af þeim sem uppfylltu þau reyndist verðið lægst hjá Deloitte. Samningur milli Ríkisendurskoðunar og Deloitte var undirritaður 24. júlí sl. og nær til þriggja ára, 2009–2011. Samkvæmt honum mun félagið endurskoða ársreikning bankans og árita hann í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Jafnframt skal það árita hálfsársuppgjör bankans með könnunaráritun. Hins vegar felur verkefnið ekki í sér stjórnsýsluendurskoðun og verktaki má hvorki veita bankanum ráðgjöf sem ekki tengist beint starfi hans sem endurskoðanda né sinna öðrum störfum sem geta haft áhrif á óhæði hans.
Þá undirrituðu Ríkisendurskoðun og Seðlabankinn nýlega samning um að stofnunin taki að sér vinnu við innri endurskoðun bankans á tímabilinu 2009–2011. Samkvæmt samningnum skal Ríkisendurskoðun m.a. leggja mat á og bæta virkni áhættustýringar, eftirlitsaðferða og stjórnunarhátta með kerfisbundnum og öguðum vinnubrögðum og styðja þannig bankann í að ná markmiðum sínum. Áður annaðist deild innri endurskoðunar í bankanum þetta verkefni.

Þess má geta að framangreindar breytingar á fyrirkomulagi ytri og innri endurskoðunar Seðlabanka Íslands eru í samræmi við samkomulag íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (International Monetary Fund).