Ófremdarástand í skilum ársreikninga sjóða og sjálfseignarstofnana

Staðfestir sjóðir og stofnanir

27.08.2024

Samkvæmt 3. gr laga nr. 19/1988, um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, ber þeim sem bera ábyrgð á sjóði eða stofnun að senda Ríkisendurskoðun ársreikning sjóðs eða stofnunar ásamt skýrslu um hvernig fé hefur verið ráðstafað. Árlegur skilafrestur er 30. júní.

Einungis 155 aðilar höfðu uppfyllt skilaskyldu sína þann 1. júlí sl. eða um 23% þeirra sjóða og stofnana sem voru á skrá fyrir árið 2023. Skilin á sama tíma árið 2023 voru um 22% og um 30% árið 2022. Því er ljóst að skil sjóða hafa farið versnandi sl. ár. 

Ríkisendurskoðun lítur þetta mjög alvarlegum augum og ekki hvað síst í ljósi þess að í nýjasta áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka sem gefið var út í desember 2023, er sérstaklega fjallað um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og ófullnægjandi skil þeirra á ársreikningum síðustu ár.

Athygli stjórnvalda hefur á undanförnum árum verið vakin á slælegum skilum og skorti Ríkisendurskoðunar á úrræðum vegna þessa. Þann 22. júní sl. voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá sem taka munu gildi 1. janúar 2025. Lögin fela í sér talsverðar breytingar og mun sýslumaður taka alfarið við málaflokknum, m.a. móttöku og yfirferð ársreikninga.  

Ríkisendurskoðun mun fyrir árslok birta útdrátt úr þeim ársreikningum sjálfseignarstofnana og sjóða fyrir rekstrarárið 2023 sem borist hafa sem og lista yfir þá sjóði sem eru í vanskilum.

Mynd með frétt