Áminning um skil ársreikninga stjórnmálasamtaka

Stjórnmálastarfsemi

17.10.2024

Ríkisendurskoðandi minnir á að skilaskylda á ársreikningi hvílir á stjórnmálasamtökum og framboðum, sem taka þátt í kosningum til Alþingis og sveitarstjórna sbr. skilgreiningu í lögum nr. 162/2006. Ber þeim skylda til þess að skila ársreikningi fyrir árið 2023 til Ríkisendurskoðunar í síðasta lagi þann 31. október nk. Er jafnframt bent á leiðbeiningar ríkisendurskoðanda um reikningshald stjórnmálasamtaka og skil þeirra á upplýsingum til Ríkisendurskoðunar. 

Einnig er bent á að til þess að stjórnmálasamtök geti fengið fjárveitingu frá ríki eða sveitarfélögum þurfa þau að vera skráð hjá ríkisskattstjóra sem stjórnmálasamtök og hafa sinnt upplýsingaskyldu sinni gagnvart Ríkisendurskoðun. Ársreikningar þeirra þurfa einnig að hafa verið birtir af Ríkisendurskoðun. 

Ríkisendurskoðandi mun birta ársreikningana eins fljótt og mögulegt er, en þó í fyrsta lagi degi eftir að skilafresti lýkur, þar á meðal upplýsingar um alla lögaðila sem hafa styrkt stjórnmálasamtökin, fjárhæðir þeirra framlaga og nöfn einstaklinga sem veitt hafa framlög yfir 300.000 kr. 

Mynd með frétt