25.06.2025
Sjúkratryggingar hafa ekki orðið sá sterki aðili við kaup á heilbrigðisþjónustu sem að var stefnt með lögum nr. 112/2008 um sjúkratryggingar. Stofnunin fylgir ekki nema að hluta til lögbundnu hlutverki sínu og hefur hvorki náð að byggja upp þá þekkingu né mannauð sem þarf til að gera nauðsynlegar þarfa- og kostnaðargreiningar í tengslum við samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu. Þá hefur eftirlit með framkvæmd samninga verið brotakennt og á tímabili vart til staðar.
Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, Sjúkratryggingar sem samnings- og eftirlitsaðili, sem kynnt var fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fyrr í dag.