14.09.2026
Ríkisendurskoðun hefur samið við tvö erlend systurembætti um að þau taki að sér að gera svokallaða jafningjaúttekt á embættinu. Um er að ræða franska endurskoðunardómstólinn (Cour des comptes) og litáísku ríkisendurskoðunina (Valstybés kontrolé). Viljayfirlýsing um úttektina var nýlega undirrituð af æðstu yfirmönnum embættanna, þeim Guðmundi B. Helgasyni ríkisendurskoðanda; Amélie de Montchalin, forseta franska endurskoðunardómstólsins; og Irena Segalovičienė, ríkisendurskoðanda Litáens.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni mun úttektin lúta að vinnubrögðum og aðferðum Ríkisendurskoðunar, annars vegar á sviði fjárhagsendurskoðunar og hins vegar á sviði stjórnsýsluendurskoðunar. Meginmarkmiðið er að kanna hvort vinnubrögðin og aðferðirnar séu í samræmi við staðla og leiðbeiningar sem Alþjóðasamtök ríkisendurskoðana (INTOSAI) hafa gefið út.
Hópur reyndra sérfræðinga frá Frakklandi og Litáen mun framkvæma úttektina samkvæmt aðferðafræði sem almennt er beitt í úttektum af þessu tagi. Sérfræðingarnir munu m.a. rýna margvísleg gögn og ræða við starfsfólk embættisins, alþingismenn og stjórnendur ráðuneyta og stofnana. Vinnan hófst nú í september og er stefnt að því að henni ljúki á fyrri hluta ársins 2028. Niðurstöður verða settar fram í skýrslu sem send verður Alþingi og birt á vef embættisins
Þess má geta að tvívegis áður hefur verið gerð jafningjaúttekt á Ríkisendurskoðun. Árið 1997 gerði breska ríkisendurskoðunin (National Audit Office – NAO) slíka úttekt og á árunum 2012-2013 gerðu hollenska ríkisendurskoðunin (Algemene Rekenkamer), sænska ríkisendurskoðunin (Riksrevisisionen) og norska ríkisendurskoðunin (Riksrevisjonen) jafningjaúttekt á embættinu.