Hafa komið til móts við ábendingar varðandi breytingar á skipulagi Stjórnarráðsins

Skýrsla til Alþingis

22.10.2026

Forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti hafa komið til móts við ábendingar Ríkisendurskoðunar frá árinu 2023 sem lutu að breytingum á skipulagi Stjórnarráðs Íslands.
 

Í kjölfar alþingiskosninga haustið 2021 voru breytingar gerðar á skiptingu Stjórnarráðsins í ráðuneyti og skiptingu stjórnarmálefna milli þeirra. Breytingarnar tóku gildi með forsetaúrskurðum sem gefnir voru út í ársbyrjun 2022 og fólu m.a. í sér að ráðuneytum fjölgaði úr tíu í tólf.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar Breytingar á stjórnarmálefnum ráðuneyta, sem unnin var að beiðni Alþingis og birt í desember 2023, kom fram að ráðuneytin hefðu almennt átt gott samstarf um breytingarnar. Einnig hefðu þau fengið leiðbeiningar og aðstoð frá samhæfingarhópi á vegum forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis. Engu að síður var það niðurstaða Ríkisendurskoðunar að Stjórnarráðið hefði ekki verið nægilega vel í stakk búið til að takast á við verkefnið. Embættið setti fram þrjár ábendingar um úrbætur:

  • Forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti voru hvött til að efla miðlæga verkstjórn og vanda undirbúning svo að ráðuneytin yrðu betur í stakk búin til að takast á við breytingar á Stjórnarráðinu.
     
  • Forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti voru hvött til að kanna leiðir til að styrkja stoðeiningar Stjórnarráðsins svo þær gætu betur sinnt verkefnum sínum þegar breytingar væru gerðar á skipulagi þess.
     
  • Fjármála- og efnahagsráðuneyti var hvatt til að tryggja að ráðuneyti hefðu fullan aðgang að öllum fjárhagsupplýsingum um sín verkefni og stofnanir þegar breytingar væru gerðar á skipulagi Stjórnarráðsins.

Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að komið hefur verið til móts við allar þessar ábendingar. Meðal annars hafi miðlæg verkstjórn verið efld og viðmið og verkferlar skýrð. Einnig hafi sérstakar ráðstafanir verið gerðar í fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) til að tryggja yfirsýn og auðvelda flutning stofnana og verkefna á milli ráðuneyta. Ítarlega er fjallað um viðbrögð stjórnvalda við ábendingunum í eftirfylgniskýrslunni.

Mynd með frétt