24.01.2023
Ríkisendurskoðun hefur farið yfir ákveðna liði í ársreikningi Hafrannsóknastofnunar fyrir árið 2021. Hafrannsóknastofnun er A-hluta stofnun ríkissjóðs og eru ársreikningar stofnunarinnar og annarra A-hluta stofnana ekki áritaðir sérstaklega. Því er ekki gefið álit á ársreikningnum sjálfum. Endurskoðun fer fram sem hluti af endurskoðun ríkisreiknings og gefur Ríkisendurskoðandi út álit á ríkisreikningi í heild sinni.
Vakin er athygli á eftirfarandi ábendingum og athugasemdum en smávægilegum ábendingum var komið beint á framfæri við stjórnendur þegar endurskoðunarvinna fór fram.