Sinfóníuhljómsveit Íslands, stjórnsýslu- og fjárhagsendurskoðun

18.09.2023

Í janúar 2023 óskaði framkvæmdastjóri og stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ) eftir því að Ríkisendurskoðun myndi framkvæma stjórnsýsluendurskoðun á stofnuninni. Óskað var eftir því að við úttektina yrði lagt mat á verkferla og reglur er varða val á starfsfólki, listrænar ákvarðanir og stjórnun og rekstur hljómsveitarinnar. 

Sinfóníuhljómsveit Íslands - stjórnsýsluúttekt (pdf)

Mynd með færslu

Útdráttur skýrslu

Ábendingar til menningar- og viðskiptaráðuneytis

  1. Skýra þarf stöðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands
    Að mati Ríkisendurskoðunar er tilefni til að skoða skilgreiningu á eignarhaldi og rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands til framtíðar. Bæði til að skýra stöðu starfsfólks gagnvart lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna en einnig gagnvart framtíðar fjármögnun hljómsveitarinnar. 
     
  2. Ráðuneyti sinni skyldum sínum við eftirlit
    Mikilvægt er að ráðuneyti sinni eftirliti sínu með fjármálum hljómsveitarinnar innan hvers fjárlagaárs í samræmi við 34. gr. laga um opinber fjármál. Bregðast þarf við áhættu og veikleikum í rekstri. Ráðuneyti þarf að vera skýrt í samskiptum sínum við Sinfóníuhljómsveit Íslands við endurskoðun ársáætlunar og koma fram með tillögur að lausnum eða leitast eftir samstarfi við hljómsveitina um þær. 
     
  3. Skýra þarf stefnu um markmið og rekstur
    Endurskoða þarf þau stefnumarkmið Sinfóníuhljómsveitarinnar sem sett eru fram, í ljósi árangurs síðustu ára. Setja þarf fram skýra stefnu um markmið og rekstur hljómsveitarinnar til framtíðar.
     

Ábendingar til Sinfóníuhljómsveitar Íslands

  1. Skýra þarf stefnu um markmið og rekstur
    Endurskoða þarf þau stefnumarkmið Sinfóníuhljómsveitarinnar sem sett eru fram, í ljósi árangurs síðustu ára. Setja þarf fram skýra stefnu um markmið og rekstur hljómsveitarinnar til framtíðar. 
     
  2. Hlúa þarf að innri starfsemi og skýra hlutverk nefnda
    Hlúa þarf að innri starfsemi og mannauð með upplýsingagjöf og samtölum milli stjórnenda og starfsmanna. 

    Einfalda þarf og skýra hlutverk og starfsemi nefnda og stöðu þeirra í starfseminni. Gagnkvæmur skilningur á hlutverki og mikilvægi einstakra starfsmanna þarf að ríkja en niðurstöður starfsmannakannana gefa til kynna að traust skorti milli hljóðfæraleikara og starfsfólks á skrifstofu. Byggja þarf upp traust og vinna að þeim tillögum að lausnum sem fram hafa komið við áhættumat á vinnustaðnum.

Rekstur Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur verið erfiður undanfarin ár einkum vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru á aðsókn að tónleikum hljómsveitarinnar. Þannig hefur hlutfall sértekna af heildartekjum fallið úr um 22% í um 10% á síðustu tveimur árum. Á sama tíma hefur rekstrarkostnaður farið hækkandi á meðan fjárveitingar standa í stað. Mikilvægt er að auka aðsókn, fjölga tónleikagestum og setja fram skýra aðgerðaráætlun í því sambandi. Þá þarf að endurmeta stefnu og rekstrarumhverfi sveitarinnar til framtíðar. 

Almennt má segja að starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands sé í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í lögum og reglugerðum sem um sveitina gilda. Þá hefur stjórn og framkvæmdastjóri verið í samskiptum við ráðuneyti í samræmi við lög um opinber fjármál. Í ljósi hallareksturs og að starfsemi SÍ hafi ekki að fullu náð markmiðum sínum í samræmi við áætlanir er mikilvægt að ráðuneyti efli eftirlit sitt og bregðist við í tíma. Samskipti milli aðila þurfa að vera skilvirk og markmiðasetning skýr. 

Óljóst eignarhald og óvissa um stöðu starfsfólks
Ríkissjóður Íslands og Reykjavíkurborg standa sameiginlega að rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og er fyrirkomulagið fest í lög. Engu að síður er eignarréttarleg staða hljómsveitarinnar óljós þar sem hún hefur hvorki verið skilgreind sem hlutafélag né sjálfseignastofnun. Þá er hljómsveitin tilgreind í ríkisreikningi sem ríkisstofnun í A-hluta í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál. Ekkert er hins vegar fjallað um hljómsveitina í efnahagsreikningi Reykjavíkurborgar.

Þá er uppi óvissa um stöðu starfsfólks Sinfóníuhljómsveitarinnar þar sem lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins ná ekki til þeirra. Hæstiréttur hefur hins vegar úrskurðað að stofnunin sé engu að síður stjórnvald í skilningi stjórnsýslulaga. Tilefni er til að skoða betur eignaréttarlega stöðu hljómsveitarinnar og hvort það fyrirkomulag um fjármögnun sem nú er við lýði þjóni hagsmunum hennar sem best. Þá þarf að skýra stöðu starfsmanna með tilliti til starfsmannalaga. 

Vinnustaðamenning hefur veikst
Vinnustaðamenning innan Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur veikst undanfarin ár samkvæmt upplýsingum úr starfsmannakönnunum. Spila þar inn í nokkur erfið starfsmannamál sem hafa haft mikil áhrif á starfsanda og samskipti. Vinnustaðakannanir hafa enn fremur sýnt fram á aukna óánægju með starfsaðstæður og laun og vísbendingar eru um aukið álag, einelti og ofbeldi sem vinna þarf bug á. Stjórn og framkvæmdastjórn hafa brugðist við með því að endurskoða feril um viðbrögð við einelti og ofbeldi og halda þarf áfram að fylgja því eftir. 

Mikilvægt er að bæta vinnustaðamenningu innan Sinfóníuhljómsveitar Íslands með aukinni upplýsingagjöf og skýrari ferlum um aðkomu hljómsveitar og skrifstofuteymis að starfseminni. Hlutverk allra þurfa að vera skýr og ljóst í hvaða farveg samskipti eiga að fara. Aukið samtal og samstarf ætti að geta haft jákvæð áhrif á upplifun einstakra starfsmanna Sinfóníuhljómsveitarinnar af vinnustaðnum. Mikilvægt er að fara yfir hlutverk vinnunefnda innan hljómsveitarinnar, stöðu þeirra í skipuriti og hvort hægt sé að einfalda og gera verkefni þeirra skilvirkari. Að sögn framkvæmdastjóra er nú unnið að því að skýra betur hlutverk hvers og eins aðila og nefndar fyrir sig, hver ábyrgð þeirra sé og hvernig sé best að haga samskiptum. Ríkisendurskoðun hvetur stjórnendur til að leggja frekari áherslu á slíka vinnu.

Lykiltölur

Rekstrarniðurstaða 2017-2022
Tekjur árið 2022
Gjöld árið 2022
Kynjaskipting á skrifstofu SÍ
Kynjaskipting í hljómsveit SÍ