Eftirfylgni: Fangelsismálastofnun – Aðbúnaður, endurhæfing, árangur

16.02.2026

Með þessari skýrslu gerir Ríkisendurskoðun grein fyrir eftirfylgni með þeim niðurstöðum og tillögum til úrbóta sem settar voru fram í skýrslunni Fangelsismálastofnun – aðbúnaður, endurhæfing, árangur (nóvember 2023). Sú úttekt var unnin að frumkvæði Ríkisendurskoðunar í framhaldi af skýrslu embættisins Innheimta dómsekta (2022) þar sem fram komu vísbendingar um að Fangelsismálastofnun stæði frammi fyrir töluverðum áskorunum í starfsemi sinni.

Eftirfylgni: Fangelsismálastofnun – Aðbúnaður, endurhæfing, árangur (pdf)

Mynd með færslu

Útdráttur skýrslu

Í skýrslunni Fangelsismálastofnun – Aðbúnaður, endurhæfing, árangur, sem birt  var í nóvember 2023, setti Ríkisendurskoðun fram samtals níu ábendingar. Fjórar lutu að atriðum á ábyrgðarsviði dómsmálaráðuneytis, þremur var beint til Fangelsismálastofnunar, ein tók til atriða á ábyrgðarsviði heilbrigðisráðuneytis og ein til atriða á ábyrgðarsviði mennta- og barnamálaráðuneytis.  Í september 2025 hafði einungis verið komið að fullu til móts við eina ábendingu af þessum níu. Að mati Ríkisendurskoðunar hafa viðbrögð dómsmálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis einkennst af töfum á úrbótum sem getur valdið auknum samfélagslegum kostnaði til lengri tíma litið.

Ábendingar í skýrslunni 2023

Mat Ríkisendurskoðunar á viðbrögðum

Ábyrgðaraðili

Ráðuneytið vinni hratt að byggingu nýs fangelsis í stað Fangelsisins Litla-Hrauni.

Komið hefur verið til móts við ábendinguna að hluta. Áform stjórnvalda um byggingu nýs fangelsis á Stóra-Hrauni taka ekki mið af þeirri þörf sem fyrir hendi er.

dómsmálaráðuneyti 

Ráðuneytið beiti sér fyrir því að rekstur fangelsisbygginga verði færður frá Fangelsismálastofnun til Framkvæmdasýslunnar–Ríkiseigna.

Komið hefur verið til móts við ábendinguna að hluta. Ríkisendurskoðun brýnir fyrir hlutaðeigandi aðilum að flýta viðræðum um tilfærslu verkefnisins.

Mótuð verði heildstæð stefna í fullnustumálum.

Ekki hefur verið komið til móts við ábendinguna. Ríkisendurskoðun gagnrýnir hve þessi vinna er skammt á veg komin.

Bæta verður stöðu kvenkyns fanga í fangelsum landsins, m.a. með sérstökum vistunarúrræðum fyrir þennan hóp.

Ekki hefur verið komið til móts við ábendinguna. Ríkisendurskoðun ítrekar að alþjóðleg viðmið gera ráð fyrir að kvenkyns fangar séu aðskildir frá karlkyns föngum.

Efla þarf nám og þjálfun fangavarða.  

Komið hefur verið til móts við ábendinguna. Starfsemi Fangavarðaskólans hefur verið endurvakin og námið stenst lögbundnar kröfur.

Fangelsismálastofnun

Fangelsismálastofnun getur ekki með skömmum fyrirvara og án mikillar fyrirhafnar lagt fram upplýsingar um öryggisfrávik. Stofnunin þarf að efla greiningu á slíkum frávikum.

Komið hefur verið til móts við ábendinguna að hluta. Fangelsismálastofnun vinnur þó að því að auðvelda greiningu á öryggisfrávikum.

 

Efla þarf vinnustaðamenningu Fangelsismálastofnunar. Bregðast þarf við niðurstöðum starfsánægjukannana  með viðeigandi hætti.

 

Ekki hefur verið komið til móts við ábendinguna. Styrkja þarf mannauðsstjórnun stofnunarinnar. Ríkisendurskoðun ítrekar ábendinguna.

Bæta þarf aðgengi fanga að heilbrigðisþjónustu.

Ekki hefur verið komið til móts við ábendinguna. Bregðast þarf markvisst við erfiðri stöðu fanga í Fangelsinu á Hólmsheiði og Fangelsinu Litla-Hrauni.

heilbrigðisráðuneyti

Ljúka verður vinnu starfshóps um menntun fanga og fangavarða.

Ekki hefur verið komið til móts við ábendinguna og er hún ítrekuð.

mennta- og barnamálaráðuneyti