10.06.2026
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna - Innleiðing og framkvæmd
1. Bæta þarf yfirsýn um stöðu barna og kortleggja hvað þarf til að auka farsæld barna
Stjórnvöld þurfa að greina markvisst hvaða hindranir standa í vegi fyrir því að börn og forsjáraðilar fái þjónustu við hæfi þegar hennar er þörf. Niðurstöður slíkrar greiningar ætti að nýta við ákvarðanatöku og forgangsröðun aðgerða sem eiga að auka farsæld barna og ná markmiði farsældarlaganna.
2. Skilgreina þarf hlutlæga árangursmælikvarða sem fylgt er eftir reglulega
Mennta- og barnamálaráðuneyti þarf að skilgreina hlutlæga árangursmælikvarða svo að hægt sé að meta hvort ávinningur sé af þeirri kerfisbreytingu sem lögin fela í sér.
3. Setja þarf á laggirnar stafrænt kerfi um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna
Mikilvægt er að útbúin verði sameiginleg stafræn lausn, tengd gagnagrunni í umsjón Barna- og fjölskyldustofu, til að tryggja örugga miðlun persónuupplýsinga. Auk þess að auðvelda miðlun gagna gæti slík lausn boðið upp á skilvirkari og öruggari samskipti, bæði milli þjónustuveitenda og við notendur þjónustunnar.
4. Skýra þarf aðkomu veitenda almennrar þjónustu
Skýra þarf hlutverk og aðkomu þeirra sem veita börnum almenna þjónustu að samþættri þjónustu í þágu farsældar barna. Taka þarf ákvörðun um í hvaða formi þeirra aðkoma getur verið að stuðningsteymum og hverjum beri að greiða fyrir vinnuframlagið vegna samþættingar sé það umfram þá þjónustu sem þegar er veitt.
5. Efla þarf þjónustuinnviði
Eigi markmið laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna að raungerast verður að bæta þjónustu sem börnum og fjölskyldum þeirra stendur til boða og bæta tímanlegt aðgengi að úrræðum. Skortur á viðeigandi þjónustu og úrræðum sem henta ólíkum börnum og löng bið eru hindrun í þessu sambandi.
6. Endurskoða þarf fyrirkomulag og skipulag vímuefnameðferðar barna og ungmenna
Stjórnvöld þurfa, undir forystu forsætisráðuneytis og í samvinnu mennta- og barnamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis, að taka til skoðunar undir hvaða ráðuneyti meðferð og þjónusta við börn með vímuefnavanda skuli tilheyra. Við endurskoðun þessa fyrirkomulags er nauðsynlegt að tryggja að ávallt sé til staðar næg þekking og reynsla á vímuefnavanda barna og ungmenna og að samvinna og samfella sé milli heilbrigðis- og félagskerfis. Á sama tíma þarf að tryggja heilbrigðisþjónustu og aðkomu heilbrigðisstarfsfólks með viðeigandi hætti í meðferðarúrræðum fyrir börn á vegum Barna- og fjölskyldustofu.