10.06.2026
Í mars 2025 barst Ríkisendurskoðun beiðni frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis um að ferli ákvarðanatöku vegna lokunar flugbrautar 13/31 í febrúar sama ár yrði tekið til skoðunar. Ríkisendurskoðandi tilkynnti Alþingi hinn 31. mars að embættið yrði við beiðninni og í ágúst var hlutaðeigandi aðilum tilkynnt um að hafin yrði stjórnsýsluúttekt á málinu. Úttektin beindist að starfsháttum og verklagi Isavia Innanlandsflugvalla (Isavia INN) og Samgöngustofu í aðdraganda lokunarinnar og úrlausn málsins. Niðurstöður eru settar fram í þessari skýrslu. Þar er einnig að finna samtals 7 ábendingar til stjórnvalda um úrbætur á reglum, starfsháttum og verklagi.
1. Flugöryggi getur ekki verið samkomulagsatriði milli ríkis og
Reykjavíkurborgar
Innviðaráðuneyti þarf að tryggja áframhaldandi samstarf milli ríkis
og Reykjavíkurborgar hvað snýr að þróun flugstarfsemi í Vatnsmýri.
Samkvæmt samgönguáætlun er gert ráð fyrir flugvellinum þar til annar
betri kostur liggur fyrir. Sá kostur er ekki í sjónmáli og því kann að reynast
nauðsynlegt að endurnýja samkomulag ríkis og borgar. Komi til þess er
brýnt að málefni er lúta að flugöryggi og fylgni við alþjóðlegar kröfur verði
ekki gerð að samkomulagsatriði, líkt og raunin hefur verið.
2.Setja þarf skýrari ákvæði í samninga um rekstur Reykjavíkur
flugvallar
Við endurskoðun þjónustusamnings um starfsemi Reykjavíkurflugvallar
þarf innviðaráðuneyti að setja fram skýrari ákvæði um hvaða skilyrði flug
völlurinn og flugbrautir hans eiga að uppfylla, með tilvísun til viðmiða og
skilgreininga Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Jafnframt þarf ráðuneytið að
taka til skoðunar hvort setja eigi sérstök ákvæði um samráð og samstarf
við sveitarfélög á áhrifasvæði flugvallarins sem stuðlað gætu að bættri
upplýsingamiðlun um þær kröfur sem gilda varðandi umhverfi flugvallarins.
3. Setja þarf reglugerð um samráð rekstraraðila flugvalla og
sveitarfélaga
Innviðaráðherra þarf að nýta sér heimild k-liðar 152. gr. laga nr. 80/2022
um loftferðir og setja reglugerð um samráð sveitarfélaga og rekstraraðila
flugvallar.
4. Endurskoða þarf ákvæði í lögum nr. 80/2022
Innviðaráðuneyti þarf að endurskoða ákvæði í lögum um loftferðir sem
snúa að heimildum Samgöngustofu til íhlutunar vegna framfylgni skipu
lagsreglna. Tryggja verður að heimildir stofnunarinnar til að grípa til nauð
synlegra ráðstafana vegna framfylgni skipulagsreglna séu hafnar yfir vafa
og að þeim sé beitt þegar tilefni er til.
5. Endurskoða þarf ákvæði reglugerðar nr. 1144/2023 um
tilnefningar í starfshóp um skipulagsreglur flugvalla
Innviðaráðuneyti þarf að endurskoða ákvæði 2. gr. reglugerðar nr.
1144/2023 um að einungis þau sveitarfélög tilnefni fulltrúa í starfshóp um
skipulagsreglur flugvalla þar sem flugvöllur er innan staðarmarka.
6. Ljúka þarf endurskoðun skipulagsreglna Reykjavíkurflugvallar
Innviðaráðuneyti þarf að tryggja að lokið verði við endurskoðun skipu
lagsreglna Reykjavíkurflugvallar, sbr. auglýsingu nr. 682/2009 sem fyrst.
7. Samgöngustofa þarf að setja sértæka verklagsreglu um
íhlutun hennar með framfylgni skipulagsreglna
Samgöngustofa þarf að setja sértæka verklagsreglu um íhlutun stofnun
arinnar vegna framfylgdar skipulagsreglna. Slík regla þarf m.a. að segja
til um með hvaða hætti unnið er úr ábendingum um að reglunum sé
ekki framfylgt, hvaða skilyrði þurfi að vera fyrir hendi til að stofnunin
hefji íhlutun, viðmið um tímafresti og hvernig staðið sé að framkvæmd
nauðsynlegra aðgerða.