14.11.2017
Ríkisendurskoðun hefur haft lögboðið eftirlit með ársreikningum kirkjugarða frá og með árinu 1993, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu og er kirkjugarðsstjórnum skylt að senda ársreikninga kirkjugarða til stofnunarinnar. Ársreikningum næstliðins árs á að skila fyrir 1. júní ár hvert.
Til að samræma sem best alla upplýsingagjöf lét Biskupsstofa, í samstarfi við Ríkisendurskoðun, gera sérstök eyðublöð fyrir ársreikninga kirkjugarða og er lögð áhersla á að þessi eyðublöð séu notuð.
Í hinum níu prófastsdæmum landsins eru 242 kirkjugarðar sem skila eiga ársreikningum til Ríkisendurskoðunar. Í byrjun október 2017 höfðu stofnuninni borist ársreikningar frá 196 kirkjugörðum vegna ársins 2016.