24.11.2015
Í þessari úttekt fylgir Ríkisendurskoðun eftir skýrslunni Þjónustusamningur ríkisins við Farice ehf. (nóvember 2012). Leitast var við að meta hvort og þá með hvaða hætti fjármála- og efnahagsráðuneyti, innanríkisráðuneyti og Fjarskiptasjóður hefðu brugðist við þeim ábendingum sem þar var beint til þeirra.
Eftirfylgni: Þjónustusamningur ríkisins við Farice ehf. (pdf)