01.12.1998
Á síðastliðnum tveimur árum hefur Ríkisendurskoðun sent frá sér þrjár skýrslur um framkvæmdir á sviði samgöngumála. Í janúar 1997 kom út skýrsla um hafnarframkvæmdir, um flugvallframkvæmdir í júlí 1997 og um vegaframkvæmdir í júlí 1998.
Ríkisendurskoðun telur að með því að samræma áætlanir í samgöngumálum væri stuðlað að hagkvæmari framkvæmdum og aukinni arðsemi samgöngumannvirkja. Áætlanirnar gætu verið sjálfstæðar hver á sínu sviði en byggðar upp á svipaðan hátt þannig að glögg heildarmynd fengist á fjárfestingar í samgöngumálum. Á þann hátt mætti koma í veg fyrir offjárfestingu við gerð samgöngumannvirkja.