20.04.2021
Árið 2019 óskaði Alþingi eftir því að Ríkisendurskoðun gerði stjórnsýsluúttekt á Menntamálastofnun. Þar yrði m.a. dregið fram hvernig stofnuninni hefði tekist að uppfylla lögbundið hlutverk sitt og ákvæði laga um aðalnámskrá leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Menntamálastofnun tók til starfa árið 2015 eftir sameiningu Námsmatsstofnunar og Námsgagnastofnunar. Ásamt því að hafa tekið við öllum verkefnum forvera sinna voru tiltekin verkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis flutt til stofnunarinnar. Hlutverk Menntamálastofnunar er að stuðla að auknum gæðum skólastarfs og framförum í þágu menntunar en einn megintilgangur sameiningarinnar var að skýra stjórnsýslu menntamála, styrkja þjónustu við skóla og ná fram jákvæðum samlegðaráhrifum, faglegum jafnt sem rekstrarlegum.
Að mati Ríkisendurskoðunar er enn of snemmt að leggja afgerandi mat á árangur sameiningarinnar og þau samlegðaráhrif sem hún átti að hafa. Sameiningarferlið var flókið og það reyndist krefjandi að samræma stofnanamenningu og starfshætti eldri stofnananna. Óánægja ríkti með sameininguna meðal hluta starfsfólks og starfsmannavelta var mikil í fyrstu, sem dæmi má nefna að fjórðungur starfsfólks hætti á fyrsta starfsári Menntamálastofnunar. Síðan þá hefur stöðugleiki í starfsmannahaldi aukist og starfsánægja sömuleiðis. Það má því segja að stofnunin sé loks að komast í jafnvægi og líklegt að á næstu árum muni samlegðaráhrif koma betur í ljós.
Nú þegar má greina nokkur fjárhagsleg samlegðaráhrif, einkum þegar litið er til launakostnaðar. Þó er ástæða til að nefna að við niðurlagningu Námsgagnastofnunar og Námsmatsstofnunar voru gerðir starfslokasamningar að fjárhæð 48,9 m.kr. sem komu að mestu til greiðslu árið 2016. Fagleg samlegðaráhrif eru sömuleiðis greinileg og má nefna að mennta- og menningarmálaráðuneyti telur ýmsa stjórnsýslu hafa orðið skilvirkari og einfaldari með tilurð Menntamálastofnunar. Þá er það mat þeirra hagsmunaaðila sem Ríkisendurskoðun ræddi við að um faglega stofnun sé að ræða sem búi yfir mikilli sérþekkingu. Hún veiti jafnframt betri og heildstæðari þjónustu en fyrir sameiningu. Könnun sem Ríkisendurskoðun gerði meðal stjórnenda grunnskóla á Íslandi bendir einnig til þess að ánægja sé með fagleg samskipti við stofnunina.
Í skýrslubeiðni Alþingis var óskað eftir áliti ríkisendurskoðanda á eftirfarandi þáttum:
Að mati Ríkisendurskoðunar er árangursmat á þessum þáttum bundið tilteknum takmörkunum en hafa verður í huga að ein stærsta áhrifabreytan í gæðum náms eru kennarar og skipulag grunnskólanna sjálfra. Þessa þætti hefur Menntamálastofnun takmörkuð áhrif á og óljóst er hvaða lögbundna hlutverki stofnunin gegnir varðandi ráðgjöf og leiðbeiningar til sveitarfélaga og grunnskóla á þeirra vegum. Þá er erfitt að líta á árangur íslenskra barna í samræmdum prófum eða PISA-könnunum sem mælikvarða á árangur stofnunarinnar en ekki verður annað séð en að stofnunin hafi almennt sinnt framkvæmd prófa með fullnægjandi en á því eru þó tvær undantekningar þar semtæknilegir örðugleikar hömluðu fyrirlagningu samræmdra prófa.
Menntamálastofnun sér kennurum og nemendum grunnskóla fyrir námsefni og sinnir ytra mati á skólunum. Hún hefur þó ekki valdheimildir til að fylgja eftir ábendingum sínum og tillögum til úrbóta. Fram kom hjá Menntamálastofnun að stofnunin hefði ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að sinna ytra mati á grunnskólum landsins og því tók lengri tíma en til stóð að ljúka því. Að sögn stofnunarinnar hefði ekki tekist að ljúka mati á öllum skólum landsins ef ekki hefði komið til styrkur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Óljóst er hvernig ytra mati og samræmdum prófum verður háttað eftir árið 2021 þar sem mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur ekki tekið ákvörðun um það. Mikilvægt er að eyða þeirri óvissu sem fyrst svo að stofnunin geti skipulagt störf sín á þessu sviði og sinnt þeim með árangursríkum hætti.
Í könnun sem Ríkisendurskoðun gerði meðal stjórnenda allra grunnskóla á Íslandi kom fram að meira en helmingur þátttakenda taldi námsgögn Menntamálastofnunar vera fjölbreytt, vönduð og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla.
Stofnunin hefur undanfarið tekið mikilvæg skref í útgáfu á stafrænu námsefni en þarf að sinna því betur að fylgja námsefni úr hlaði með fræðslu til kennara. Meirihluti þeirra sem tóku afstöðu í könnun Ríkisendurskoðunar voru óánægðir með hvernig til hefði tekist með slíka fræðslu. Tilgangur lagasetningar um Menntamálastofnun var m.a. að styrkja þjónustu við skóla og hefur verkefnið Þjóðarsáttmáli um læsi haft í för með sér ávinning í formi aukinnar sérþekkingar og aukinnar þjónustu við skóla hvað læsi varðar. Menntamálastofnun telur þörf á frekari þjónustu og ráðgjöf við skóla eins og veitt hefur verið í tengslum við læsisverkefnið.
Samkvæmt lögum er Menntamálastofnun ætlað að vera mennta- og menningarmálaráðuneyti til aðstoðar og ráðgjafar við undirbúning laga, reglugerða og aðalnámskráa á sviði menntamála.
Sú ráðgjöf hefur ekki verið sem skyldi því samskipti milli ráðuneytis og stofnunar hafa ekki verið nægileg. Innleiðing aðalnámskrár grunnskóla er dæmi um þetta en þar hefur ábyrgð á verkefninu í reynd verið óljós frá upphafi. Það hefur leitt til þess að innleiðingu hæfnimiðaðs náms er enn ólokið, sjö árum eftir útgáfu aðalnámskrár.
Könnun á vegum ráðuneytisins frá árinu 2019 sýnir að enn ríkir óvissa um aðalnámskrá og að stuðning hafi skort frá menntamálayfirvöldum. Skólastjórnendur telja þörf fyrir frekari stuðning og leiðsögn við innleiðingu aðalnámskrár og tekur Menntamálastofnun undir það. Ráðgjöf og leiðsögn til skóla vegna þessa væri best fyrir komið með auknu samstarfi Menntamálastofnunar við sveitarfélög.
Að mati Ríkisendurskoðunar er ein helsta hindrun Menntamálastofnunar í að ná markmiðum sínum og sinna lögbundnum skyldum óljós staða í stjórnkerfinu, síbreytileg verkefni og óvissa tengd ýmsum þeirra. Samráð og skýr ábyrgðarskipting þegar kemur að framkvæmd grunnskólamála er afar mikilvæg til að tryggja góðan árangur.
Stofnunin er ekki alltaf virkur aðili í stefnumótun stjórnvalda um menntamál en ber þó að hafa umsjón og eftirlit með mikilvægum þáttum menntamála. Stór hluti framkvæmdarinnar er í höndum sveitarfélaga landsins en þar hefur Menntamálastofnun ekki umboð til íhlutana. Starfsemi Menntamálastofnunar hefur frá stofnun verið í sífelldri þróun, verkefnaflutningur umfangsmikill og fyrirsjáanleiki í starfseminni oft takmarkaður. Þá hefur óvissa ríkt um fjármögnun og ábyrgð tiltekinna verkefna, einkum milli stofnunarinnar og mennta- og menningarmálaráðuneytis sem nauðsynlegt er að taka á.
Það er mat Ríkisendurskoðunar að ekki hafi náðst að skerpa og styrkja stjórnsýslu menntamála eins og til stóð með lögfestingu laga um Menntamálastofnun.
Ætlunin með nýrri stofnun var að mennta- og menningarmálaráðuneyti fengi aukið svigrúm til að sinna yfirstjórnunarhlutverki sínu þar sem stjórnsýsluhlutverk þess myndi færast yfir til nýrrar stofnunar. Allt bendir til að sú hefði átt að verða raunin. Hins vegar hefur skipulag í ráðuneytinu verið til skoðunar og út kom skýrsla frá Capacent í ársbyrjun 2020 þar sem m.a. var bent á að ráðuneytið þyrfti að veita stofnunum sínum aukinn stuðning og skerpa á skilum verkefna. Þetta á einnig við um Menntamálastofnun sem sérstaklega var minnst á í skýrslunni.
Ríkisendurskoðun telur að eftirlit mennta- og menningarmálaráðuneytis með stjórnun og fjárhag stofnunarinnar hafi á köflum verið ábótavant. Þörf er á virku samtali og samráði milli stofnunarinnar og ráðuneytis.
Fjármálastjóri Menntamálastofnunar var í leyfi frá störfum frá miðjum maí 2019 fram í ágústbyrjun og aftur frá febrúar 2020 til ársloka það ár. Hluta þess tímabils gegndu tveir staðgenglar stöðu fjármálastjóra í hlutastarfi. Þær aðstæður urðu að sögn forstjóra til þess að yfirsýn hans um fjármál stofnunarinnar skertist.
Ríkisendurskoðun bendir á að við þær aðstæður sem voru í rekstri Menntamálastofnunar á árunum 2019 og 2020 sé það í samræmi við ábyrgð forstöðumanna samkvæmt lögum nr. 123/2015 um opinber fjármál að hafa yfirsýn yfir fjármál stofnunarinnar og upplýsa hlutaðeigandi ráðherra án tafar um frávik frá rekstraráætlunum stofnunar.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti var upplýst um þróun í rekstri Menntamálastofnunar 2019 án þess að gerð væri athugasemd við hana. Taldi ráðuneytið slíkt óþarft vegna þeirra uppsöfnuðu fjárheimilda sem stofnunin bjó yfir. Ríkisendurskoðun bendir á að 34. og 35. gr. laga um opinber fjármál hafa að geyma fyrirmæli um hvernig ráðuneyti skulu bregðast við áhættum og veikleika í rekstri stofnana.
Forstjóri Menntamálastofnunar telur það hafa haft áhrif á rekstur og fjárhagsstöðu stofnunarinnar að nægt fjármagn hafi ekki alltaf fylgt þeim verkefnum sem mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur falið henni. Óvissa ríkir einnig um fjármögnun nýrra verkefna eins og t.d. kennararáðs. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu telur það að stofnunin eigi að geta sinnt mörgum umræddra verkefna innan fjárheimilda en þó hafi tímabundin fjárheimild fylgt öðrum. Ríkisendurskoðun bendir á að ef slík verkefni eru framlengd er mikilvægt að áframhaldandi fjármögnun þeirra sé tryggð meðan Menntamálastofnun er falið að sinna þeim.
Ólík sýn stofnunar og ráðuneytis á fjármögnun verkefna bendir til þess að mikilvægt sé að komast að sameiginlegum skilningi. Ríkisendurskoðun leggur til að sameiginlega verði farið yfir reksturinn og fjármögnun verkefna svo stofnunin geti gert áætlanir um framkvæmd verkefna og sinnt lögbundnu hlutverki sínu.
Stofnunin hefur á starfstíma sínum unnið ýmiss konar gæðabætandi starf og má þar nefna undirbúning að öryggisvottun, innleiðingu gæðahandbókar og nýrri skjalastefnu.
Stjórnsýsla forvera Menntamálastofnunar var að mörgu leyti vanþróuð og hefur stofnunin unnið að umbótum í innra starfi sínu sem eru í anda góðra stjórnsýsluhátta. Helstu veikleika hvað þetta varðar er að finna í stjórn mannauðsmála.
Á árinu 2019 var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem uppsögn starfsmanns Menntamálastofnunar var dæmd ólögmæt. Í dóminum eru gerðar athugasemdir m.a. við að almennum málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga hafi ekki verið fylgt og andmælaréttur viðkomandi starfsmanns ekki virtur. Einnig var tekið fram að hann hafi ekki hlotið áminningu í starfi áður en til uppsagnar kom líkt og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins gera ráð fyrir. Ríkisendurskoðun vekur athygli á að yfirstjórn mennta- og menningarmálaráðuneytis var ekki kunnugt um framangreint dómsmál þótt erindi hafi í tvígang borist ráðuneytinu í tengslum við málið. Rannsókn á ástæðum þessa stendur yfir innan ráðuneytisins en ámælisvert er að upplýsingar um jafn alvarlegt mál og þetta rati ekki til ráðherra og ráðuneytisstjóra.
Þá hafa á þeim fimm árum sem stofnunin hefur starfað komið fram kvartanir um einelti. Í niðurstöðum og úrbótatillögum skýrslu ráðgjafarfyrirtækis um eineltismál, sem unnin var á vegum mennta og menningarmálaráðuneytis árið 2020, er stjórnun stofnunarinnar metin áhættuþáttur fyrir félagslega og andlega heilsu á vinnustaðnum og m.a. lagt til að allir verkferlar í eineltismálum verði yfirfarnir. Mikilvægt er að tekið verði á þessum þáttum í starfsemi stofnunarinnar.