16.01.2023
Ríkisendurskoðun hefur lokið stjórnsýsluúttekt á stöðu innheimtu dómsekta. Úttektin leiddi í ljós að lítil sem engin breyting hefur orðið á árangri innheimtu frá því embættið skoðaði sama málaflokk árið 2009. Í millitíðinni skipaði dómsmálaráðherra, samkvæmt fyrirmælum í lögum, starfshóp sem ætlað var að endurskoða úrræði yfirvalda til innheimtu sekta og sakarkostnaðar í þeim tilgangi að bæta innheimtuhlutfall. Starfshópurinn skilaði skýrslu í árslok 2018 og lagði fram níu tillögur til úrbóta. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki brugðist við með formlegum hætti og ekki liggur fyrir markviss afstaða ráðuneytisins í þessum málum.
Álagðar dómsektir sem námu 10 m.kr. eða meira á tímabilinu 2014-18 voru að heildarfjárhæð 5.699 m.kr. Af þeim höfðu í árslok 2021 einungis 2,2% verið greiddar. Í 41% tilvika var vararefsingu beitt og skiptist það þannig að vararefsing var í formi samfélagsþjónustu í 38,7% tilvika en 2,3% í formi fangelsisvistar. Þá eru fyrningar og afskriftir dómsekta einnig verulegar en yfir tímabilið 2014-2021 hafa samtals 1.341 m.kr. verið afskrifaðar.
Ríkisendurskoðun telur brýnt að dómsmálaráðuneyti bregðist við lágu innheimtuhlutfalli dómsekta og hvetur ráðuneytið til að flýta, eins og kostur er, efnislegri meðferð á skýrslu framangreinds starfshóps og taka afstöðu til þeirra tillagna sem þar koma fram því til mikils er að vinna að bæta innheimtuhlutfall dómssekta.