29.01.2018
Ríkisendurskoðun ítrekar ekki tvær ábendingar til velferðarráðuneytis frá árinu 2015 er vörðuðu málefni Lyfjastofnunar, þar sem ráðuneytið hefur brugðist við þeim með viðunandi hætti. Þetta kemur fram í nýrri eftirfylgniskýrslu.
Í fyrri ábendingunni var bent á að finna þyrfti varanlega lausn á rekstrarvanda stofnunarinnar og uppsöfnuðum halla hennar. Haustið 2015 samþykkti Alþingi að hluti bundins eigin fjár Lyfjastofnunar yrði nýttur til að gera upp neikvæðan höfuðstól stofnunarinnar. Ríkisendurskoðun bendir þó á að enn er ófrágengið hvernig almennt skuli gera upp bundið fé stofnana. Núverandi ástand skapar óvissu og gefur ranga mynd af stöðu þeirra. Mikilvægt er að efnahags- og fjármálaráðuneyti beiti sér fyrir því að tekið verði heildstætt á málinu fyrir allar stofnanir sem hafa bundið eigið fé.
Síðari ábendingin laut að því að meta þyrfti kostnað vegna lögbundinna stjórnsýsluverkefna Lyfjastofnunar og gera ráð fyrir honum í fjárlögum. Velferðarráðuneyti hefur áætlað að kostnaðurinn sé um 36 m.kr. á ári. Samþykkt var með fjárlögum fyrir árið 2018 að stofnunin fengi 15 m.kr. fjárveitingu til að standa straum af eftirliti með lækningatækjum. Í ljósi þess að heilbrigðisráðherra muni framvegis ákvarða fjárheimildir Lyfjastofnunar, sbr. 22. gr. laga um opinber fjármál, bendir Ríkisendurskoðun á að mikilvægt sé að fjárveitingar takið mið af þeim verkefnum sem stofnuninni er falið að sinna.